Leiðinlegasta myndband í heiminum ...


Creep

er geðveikt  gott lag, en þegar maður pælir í textanum  fer maður að sjá að maður er ekkert spes bara venjulegur Woundering

vildi líka óska þess að það væri eitthvað varið í mann og að maður væri eitthvað sérstakur en ekki þessi skrítna manneskja sem að hangir ein heima öll kvöld að vorkenna sjálfum sér . 

Endilega spáið í þessum texta.


jaðkjálftar hvað ..........

Svona grínlaust. að eftir skjálftann 29 mái  síðastliðinn heima á selfossi  sem að var 6,1  þá finnst mér  4,1 ekki mikið en já þetta er SKREÍ SJITT !! Pinch

Aldrei brugðið eins mikið og þegar ég mætti heim til mín þá ... allt ónítt ... svona er þetta en já ... vill ekkert fá þetta aftur sko  .. 

 

Höfum það gott.. allavega ég W00t


mbl.is Jarðskjálftahrina við Grímsey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öll voða falleg........ Er það allt?

Hef ekki myndað mér neina svakalega skoðun á þessu bandi . mér finnst það í raun og veru frekar hallarslægt þar sem að þetta snýst ekki um tónlist heldur útlit . frekar sorglegt bara , þið megið garga á mig ef þið viljið en það er bara eitt orð yfir þetta og það er hallarislegt að bandið snúist um einhverja kroppasýningu uppá sviði Whistling Spáið aðeins í því hvort að þau myndu hljóta mikillar vinsældar ef að strákarnir væru ekki að stripplast uppá sviði ?Shocking  Pæling..........benz.jpg
mbl.is Tónleikar Merzedes Club féllu niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er bara ekkert öðruvísi ...

Þetta er alveg magnað,betra seint en aldrei að gista fangageymslur segi ég nú bara ég er svo orðlaus að ég veit ekki alveg hvers vegna ég er að blogga um þessa frétt. Ætti kannski bara að þegja en það er bara ekki minn stíll . Eina sem að ég get sagt að ýmislegt má nú vanta í blessað fólkið .

Bubbi söng einu sinni lag sem að innifól textann "sum börn eiga foreldra aðeins að nafninu til,, 

Nokkuð til í því ekki satt??Frown


mbl.is Tóku barn með í hasssöluferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hitti í mark ...

Heyr heyr!!!! þetta er það sem ég  er að tala um !!! afhverju ekki að tala um eitthvað sem skiptir máli eins og hann segir.. er bara alveg sammála honum.... það er bara þannig að allt þetta dót verður virkjað það er bara spurning um tíma og það að einhver sé með eitthvað vesen er bara að tefja þetta ,þetta er bara seinkun á máli sem að við vitum að á eftir að verða að veruleika... Og svo er það bara þannig að  auðvitað höfum við öll okkar skoðanir sem að er bara gott mál en maður verður líka að lifa í raunvöruleikanum .Þó það sé voðalega gaman að leika prinsessu  í öllum þessum þúfum og steinumSmile .
mbl.is Björk ætti frekar að syngja gegn fátækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki eitthvað að gera fyrir þá heima hjá sér??

Þetta er nú meira ruglið.. að mótmæla einhverjum stað sem að þeir vita varla hvar er , ég hef bara aldrei náð þessu .. er þetta bara ekki svipað og að ég færi nú að búa mig undir mótmælaferð til Ástralíu . Hefur fólk kannski ekkert annað að gera það er spurning ég bara vorkenni þessu vesalingsfólki Errm
mbl.is Stöðvuðu vinnu í Helguvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komin aftur

Komi þið sæl og viti menn !! þetta var þá bara pása hjá mer sem að varði jú reyndar i ár Smile en allavega þá er ég að koma inn í blogg heiminn aftur. Er bara smá feimin að fara að rífa kjaft hérna aftur en það verður bara gaman . Þetta er allt honum Vigni nokkrum Ófeigssyni að þakka, að ég komst inná netið mitt , hélt að það ætlaði ekki að hafast en hann er snilli , jæja hlakk til að fara að kasta inn einni og einni færslu hérna

Blogg lokun / pása

Jæja ætla að henda inn smá færslu svona í tilefni þess að ég á ekki eftir að tjá mig mikið hérna en þar sem ég verð að vinna er ekki aðgangur að neti og enda ekki þörf að vera hangandi í tölvunni þar og svo er ekki tölva til staðar heima hjá mér . En mér langar að tala um eitt í dag  hringdi ég í manneskju  til að spyrja hana ákveðna spurningu og hún var nú ekki par hrifinn af orðalagi mínu og hvernig ég lét ljót orð flakka hér á síðunni í sambandi við færsluna um bændur . En það verður þá bara að hafa það . Ég hélt að á svona blogg síðum réði fólk algerlega hvað það léti flakka . HEHE ég hélt nú í sannleika sagt að þessi manneskja læsi nú bloggið mitt ekki og hvað þá vissi af því en jæja allavega þá ætla ég ekki að biðjast afökunnar á einu eða neinu fólk hefur nú látið verri hluti flakka en þetta þegar það eru sagðir ógeðslegir hlutir við mann og maður svívirtur daglega vegna þess að maður sé kvenkyns  og ég lét það aldrei heyrast hvað maður fylltist mikilli anstygð á þessu heldur einungis sagði ég hlíleg orð .ég veit vel að ég er í þjónustu starfi og á að þjónusta en það er ekki hægt að láta bjóða sér hvaða viðbjóð sem er  . Þetta hef ég um málið að segja og vona að þessi viðkomandi manneskja taki þessu ekki illa heldur hefji sína eigin bloggsíðu  það væri nú gaman að fylgjast með því Smile Vona að ég hafi ekkert verið leiðinleg á þessum ferli en ég sé að það hafa margir fylgst með þessu vefsvæði mínu og þakka fyrir það en ég stið fólk algerlega í því að koma skoðunum sínum á framfæri þótt að þetta sé kannski ekki alltaf fallega orðað. 

en þá er þetta svona mest megnis komið , ég bið ykkur vel að lifa og reyni að blogga einhvertíman við tækifæri  

 

 

Takk fyrir mig ....

Birnag  Wizard


Dagvistun

Ég er komin með aðra vinnu og það framtíðar vinnu á dagvistunnar heimili sem að börn fara til eftir skóla og leika sér . ég byrja þar á mánudag hlakka bara til .....Smile

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband